Bloggiđ" href="/rss/" /> Myndir" href="/rss/myndir/" /> Gestabók" href="/rss/gestabok/" />

Ţessa síđu á

  • Nafn: Linda Mjöll Sindradóttir
  • Netfang: linda_sindradottir@hotmail.com
  • Um mig: Ţetta er síđan hans Antons Búa. Hann fćddist 26 Nóv. 2007, 6 dögum eftir settan dag. Endilega veriđ dugleg ađ kíkja hérna inn og sjá hann stćkka :)

Hvađ er Búi gamall?

Lilypie Fourth Birthday tickers

Innskráningar kubbur

Leit

Is it true!!

09. nóvember 2011 klukkan 20:20
Sæææææælt veri fólkið!! Nú er sko aldeilis kominn tími í að kynda aftur upp í þessu Búa bloggi :D Ég þarf nú víst að endurskíra það eitthvað, kannski eitthvað í áttina: Búa og ____ blogg! Frumlegt og gott! Litli bróðirinn á að koma í heiminn 29 Janúar 2012, en ef hann er eitthvað líkur restinni af fjölskyldunni verður hann seinn. Búi er rosa spenntur og talar mikið um Ómar bróður sinn (hann valdi þetta nafn og kallar hann því, en mig grunar að einhver lumaði þessari hugmynd í hausinn á honum..ehm amma?). Hann veit að fyrst er afmælið hans, svo Sindra afa, svo mömmu, svo kemur snjór, svo jól...svoooo litli bróðir. Hann er alveg með þetta á hreinu enda skýr og bráðgáfaður drengur (mont).

Allt gengur rosalega vel hér heima fyrir. Egill er á fullu í verkfræðinni og hefur rosalega gaman af því að sýna mér verkefni úr skólanum sem ég botna ekkert í. Þá fer ég bara að tala um kúspa, heilgóma, frenum og postulínstegundir og hættir hann þá. Búi hefur mjög gaman af leikskólanum og á orðið marga vini sem hann vill ólmur bjóða heim til sín og helst í næturgistingu. Hann er kominn á svo fyndinn aldur að það nær stundum engri átt allt sem veltur uppúr honum. Hef punktað þetta niður síðustu mánuði og set það fljótlega inn í Gullkornin hér fyrir ofan. En bara svona eitt dæmi: Ég og Búi vorum að tala um dýr og mömmur þeirra og pabba. Hann fer að tala um Heru voffa sem foreldrar mínir eiga og segir hann þessa gullnu setningu „Mamma, þegar Hera voffi var í maganum á Siggu ömmu....." Ég auðvitað sprakk úr hlátri og sagði að Hera ætti voffa mömmu og voffa pabba í sveitinni, en Búi hélt sko aldeilis ekki. Bara krúttaður!

Hvað varðar bumbubúann (ég fæ ennþá kjánahroll við að nota þetta orð) þá gengur allt rosalega vel! Er komin rétt rúmar 28 vikur eða rúma 6 mánuði og er bumban stærri en þegar ég var ólétt af Búa Guð hjálpi mér! Þetta jafnast kannski út...vonandi. Ég hef sloppið ótrúlega vel við alla meðgöngukvilla so far, fyrir utan kannski smá þreytu, brjóstsviða og sinadrátt. Það er alltaf hressandi að vakna á nóttinni með góðan sinadrátt í kálfanum og spyrna þá á móti og fá þá sinadrátt sköflungsmeginn og geta ekkert gert. Hvað þá ropa og fá hálfan matseðilinn upp með. Mínir bestu vinir þessa dagana eru snúningslakið, bumbubeltið og brjóstsviðatöflurnar. Get annars lítið kvartað.

Nenni engu myndaveseni í kvöld en það væri samt gaman að fá kvitt frá einhverjum :)) Bara svona smá ‘positive reinforcement'. Þá skelli ég kannski inn afmælisbloggi og myndum frá væntanlegu 4 ára afmæli Búa (sem hann talar um ALLA daga).

Xoxo elskurnar!



Linda Mjöll Sindradóttir
10 athugasemdir

Loksins loksins nýtt blogg og fullt af myndum!!

01. mars 2011 klukkan 22:19
Nú er afmælið hans Búa liðið og gott betur en það. Það var barna afmæli á Laugardeginum og svo fjölskylduboðið á Sunnudeginum, veislurnar voru æðislegar báðar tvær. Afmæliskaka, pylsupartý, chili, pakkar og fleira gott. Hér er nokkrar afmælis myndir, og svo auðvitað glás í nóvember mynda albúminu.



Á þriggja ára afmælisdaginn



Einn að velta kökunni fyrir sér



Búi og Benjamín eru bestu vinir! :)

Búi er svo óendanlega fyndinn stundum að það er engu lagi líkt. Núna er hann mikið að pæla í því þegar hann á eftir að missa litlu tennurnar. Hann segir við mig nánast daglega, að þegar hann missir litlu þá koma stórar. Hann fékk sleikjó um daginn þegar hann var búinn í klippingu og ég bannaði honum að bryðja því annars gætu tennrunar brotnað. En þá sagði minn bara "þegar ég er búinn að brjóta tennurnar á sleikjónum, þá fæ ég stórar tennur"! Ekki alveg að fatta conceptið. Svo núna er hann alveg kominn í þann pakka að þegar hann verður stór fær hann líka brjóst, eða bólur ein og hann kallar þau. Svo vill hann líka vera með sítt hár! Svo elskar hann naglalakk á tásurnar. Ég veit ekki hvernig þetta endar...sítt hár...brjóst...naglalakk....og uppáhalds liturinn hans er bleikur!! Oooooo þetta er litla stelpan sem ég óskaði mér alltaf ;p Nei að öllu gamni slepptu er bara svo yndislegur þegar kemur að þessu, og annars eins mikill strákur og um getur hugsast. Hann elskar bíla og er með bíladellu á háu stigi. Hann á yfir 50 bíla sem hann ELSKAR og leikur sér með allan daginn.

Búi í gistingu hjá ömmu og afa...Hera voffi að passa hann :* Þau eru rosa góðir vinir!

Jólin...já jólin voru yndisleg í alla staði. Við þrjú eyddum aðfangadagskvöldi saman heima. Elduðum hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi, forrétt og eftirrétt. Búi fékk fáránlegt magn af pökkum og skemmti sér manna best að rífa og tæta. Hann var reyndar mjög stilltur og góður þegar kom að gjöfunum, og beið á meðan við opnuðum pakkana okkar. Nú þarf að fara að grynnka aðeins í herberginu hans, því það nánast flæðir dót úr öllum hornum, skúffum og undan rúminu ;)
Jóladagskvöld vorum við með allri fjölskyldunni minni og fengu Búi og Atli besti frændi hans að gista saman, þangað við foreldrarnir fórum heim. Svo var annar í jólum í faðmi fjölskyldunnar hans Egils.

Jólaglugginn hans Búa

Atli og Búi frændur á jólaballi

Sjáið þið Búa...að gramsa í pokanum hjá jólasveininum!! Hann hlustaði ekkert á mig :S

Hulda amma og Hannes afi að missa sig í sveiflunni í kringum jólatréð á jólaballi Granzara ;)

Spenntur að borða jólamatinn

Feðgarnir á jólunum

Ein mynd af fullorða fólkinu ;)

Búi að plokka allt nammið af ís kökunni! Hulda amma ekki sátt..." en Hannes afi sagði já"

Áramótin vorum heima hjá foreldrum mínum í góðu yfirlæti með stórfjölskyldunni. Búi var ekki lítið sáttur við flugeldana og blysin og vildi úti og inni til skiptis. Hann vakti til hálf 2, geri aðrir þriggja ára betur!!!

Flottur í rauðu blys ljósi

...og í grænu

Við Búi að horfa á sprengjur!

Atli og Búi bestu frændur

Nokkrar skemmtilega smásögur af Búa:

1. Við Búi fórum í bíó eina helgina á Ævintýralegur Flótti. Það var uppselt á venjulega sýningu þannig við þurftum að fara á 3D, og vorum við sko ekki fyrir vonbrigðum!! Búi var ekkert smá hissa á þessu öllu saman með gleraugun sín og sagði bara"VÁ MAMMA, jásu myndin er bara hjá okkur!! Má ég koma við hann?" svo teygði hann sig út í loftið og reyndi að „ná" myndinni...ekkert smá sætur og vakti mikla kátínu meðal hinna bíógestanna.

2. Búi er kominn með rosa flott helgar outfitt....alltaf sami gallinn. Það er auðvitað Bósi Ljósár grímubúningurinn. Hann vill fara í hann hverja helgi hvort sem við erum að fara í afmæli eða Kringluna, og vekur hann talsverða lukku meðal Kringlugesta í spandex gallanum með þennan fagur fjólubláa smokk á hausnum :D Svo köllum við hann Bósa í stað Búa...bara töff!

Búi Ljósár

3. Einn morguninn var ég að pissa og Búi kemur til mín og spyr hvort ég væri að kúka, og ég sagði nei. Hann sagði „Jú mamma, sú getur þetta. Þetta er ekki vont" svo rembdist hann og lék þetta allt fyrir mig. Einn vanur peppi á dollunni! ;)

Búi að dollast!

4. Við vorum eitthvað að hnoðast uppi í rúmi öll 3 og rosa gaman. Búi vildi svo snarlega hætta og sagði bara „STOPP, hætta jessum jíblagangi" (hættið þessum fíflagangi). Smá stjórnsemi eftir valdarbáráttuna í leikskólanum.

Búi komst í kremið mitt!!

5. Við sátum heima eitt föstudags kvöldið að borða pizzu. Egill er að skera pizzuna, og ég segi honum að fara varlega svo hann fari ekki í gegnum og í borðið. Þá lítur Búi á pabba sinn og spyr í fúlustu alvöru hvort hann væri feitur? Hann tengir stekur og feitur oft saman. Mikið rosalega er erfitt að sitja á sér þegar svona einlæg spurning kemur upp.

6. Ég kom heim einn daginn eftir smá Kringluferð með þröngan quart-erma jakka/vesti. Búi varð mega sáttur og spurði hvort ég hafi verið að kaupa þetta fyrir sig, enda frekar lítið. Ég sagði svo ekki vera og þá tók minn ekki til mála að þetta væri handa mér. Hann mátaði jakkann bak og fyrir og var alveg staðráðinn að hann ætti hann, enda ermarnar passlega síðar. Eftir meiri neitun frá mér varð Búi fekar pirraður og fann þvotta leiðbeiningarnar inni í jakkanum og fann stafinn sinn „B" þarna á miðanum „sjáðu mamma, minn stafur ég á hann". Sáttur fór hann með jakkann minn inn í berbergið sitt og hengdi inn í skáp!

7. Búi er fekar pirraða týpan eftir leikskólann og reyni ég bara að fara með hann beint heim í staðinn fyrir að drösslast mér pirrupúkann í Bónus. Einn daginn var það ekki hægt og ég lét mig hafa það. Búi fann þennan fína teyju og spennustand fyrir framan grænmetis deildina og neitaði að fara þaðan. Hann vildi fá hárspöng, teyjur með glimmeri og fjöðrum og allskonar spennur...allt bleikt. Ég hefði kannski látið það eftir honum hefði það kostað slikk, en þetta var fekar dýrt þannig ég neitaði. Hann öskraði þá „JÚ mamma drákar mega líka hafa spennur og teyjur í hárid sitt, það er flott". Þetta garðaði hann um alla búðina og alla leið útá bílastæði á meðan ég hélt honum í kerrunni.

8. Nýjasta nýtt hjá Búa er að gera úllen dúllen doff þegar hann er að velja milli tveggja hluta. Nema hann gerir það bara sem honum er í vil. „úlli dúlli doff, kikkilani doff, úlli dúlliiiiiiiii....doff"...svo velur hann sér. Svo um daginn þóttist ég vilja fá það sem hann vildi þá varð hann voða fúll og sagði „En ég úllaði á þetta" hahah.

Einn í húsi uppí rúmi

Af okkur hinum er allt gott að frétta, Egill á fullu í skólanum og ég vinnu og stundum skóla og að kenna. Egill verður 30 ára í þessum mánuði og verður slegið upp svaka veislu, og helgina eftir fer ég og Ingveldur vinkona á námskeið í Þýskalandi þarsem við tökum roadtrip að heimsækja aðra vinkonu!! Bara skemmtilegt framundan :D
Endilega kíkið í albúmin, er búin að vera nógu sveitt að hlaða þessu inn fyrir ykkur ;)  Svo er eitthvað í "Gullkorna" flipanum. Þangað til næst...sem verður sem fyrst!

Linda, Egill og Búi...eða Bósi

Bæjó


Knús til ykkar

Linda Mjöll Sindradóttir
1 athugasemd

Örvćntiđ ekki....

21. febrúar 2011 klukkan 01:38
Ér er að vinna í ROSA bloggi!!! ;D Er að sortera myndir 3 mánuði aftur í tímann og skrifa öll kvöld...nei djók. Kem mér margar skemmtilegar fréttir af Búa á næstu dögum! Vildi bara láta ykkur hræður sem lesið þetta vita ;)
Linda Mjöll Sindradóttir
1 athugasemd

3 ÁRA AFMĆLIS STRÁKUR!! :D

26. nóvember 2010 klukkan 07:15
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Búi, hann á afmæli í dag!! Hann er ÞRIGGJA ára í dag, hann þriggja ára í dag, hann þriggja ára hann Búi, hann þriggja ára í dag!! Veiiiiiii :)))



Kannski maður skelli í eina svona bleika...víst að það er uppáhalds liturinn hans Búa! :)

Jæja, þá er hann Búi litli alltaf að stækka og orðinn heil 17 kíló og 100cm! Stundum langar mig bara að ýta á pásu, eða betra spóla tilbaka því mér finnst ég varla hafa blikkað augunum og hann er þriggja ára. Svo segja þeir sem eru mér æðri í aldri að þetta eigi bara eftir að versna, geat! En hér eru mánaðarlegar myndir af drengnum frá tveggja til þriggja ára aldurs...svona eins og ég hef gert hvern afmælisdag. Það er ekki jafn mikill munur og var fyrst, en það er aðallega andlegi þroskinn og málfarið sem hefur þroskast svo mikið hjá honum, og því er ekki hægt að ná á mynd :) Til hamingju með afmælið elsku Búi okkar :* XOXO



Des 2009- Aðfangadagskvöld



Jan 2010- Feðgar í skrifsstofu stóla rallý!



Feb 2010- Búi bláeygði



Mars 2010- Klipping og er hættur að grenja yfir því



Apríl 2010- Búi vildi bara vera dreka-risaeðla þann mánuð :)



Maí 2010- Búi fékk hlaupabólu í maí, en var svo duglegur!



Júní 2010- Brúnn og sætur og farinn að safna í mullet



Júlí 2010- Sumar sætur..mullettið heppnaðist ekki (þessvegna buffið)   ;)



Ágúst 2010- Hættur með bleyju og orðinn stór!



Sept 2010- Orðinn töffari sem fékk hanakamb



Okt 2010- Jólafötin mátuð...er maður ekki fínn??



Nóv 2010- Orðinn þriggja ára gutti!! :*

Hér eru nokkur gullkorn sem hafa komið út út drengnum í síðustu mánuðum. Annars er hér kominn sér valkostur fyrir ofan sem heitir "gullkorn" og verður oft bætt inn í þann flipa því ósjaldan veltur vitleysan uppúr drengnum. Enn eitt sem mér fannst svooo fyndið: Búi kemur hlaupandi til mín einn morguninn og sagði "Mamma ég er með dýr í auganu" Ég sagði "HA ertu með dýr í auganu" ..."Já ég er með dýr í auganu" svo réttir hann mér vísifingurinn og segir mér að sjá! Þá var hann að meina stíru! :))Svo var Búi einusinni að skoða myndir í tölvunni og sér myndir af Ómari frænda. Hann segir "Ómar er með tattoo. Mamma og pabbi eru ekki með tattoo." "Pabbi er bara með mikið hár á hendinni"- enda ansi loðinn! ;)

Ég er búin að setja inn nokkur ný mynda albúm, hef ekki verið alltof dugleg en ég bæti það upp um helgina. Búi fær 2 afmælisveislur og verður margt um manninn og margt um myndir!! Þangað til næst :)

Linda, Egill og Búi stóri afmælis strákur! xoxo

Linda Mjöll Sindradóttir
2 athugasemdir

Sumariđ og margt fleira

26. september 2010 klukkan 21:15
Já góðan daginn!! Mín er búin að vera svo upptekin í sumar að búablogg hefur hreinlega bara legið niðri. Svo fyrir mánuði þá ætlaði ég að blogga, var búin að koma mér í stellingar og þá krassaði tölvan, ekkert grín. En það er aldeilis margt búið að gerast og mikið að segja frá þannig, skellið ykkur í pissu-pásu, poppið popp og látið fara vel um ykkur! Nei djók ;p



Drengurinn með bílaæðið!

Svona stærstu fréttirnar eru að Búi er hættur með bleyju!!! Egill tók af honum bleyjuna á meðan hann var í fríi frá leikskólanum og það vara bara ekkert mál. Hann var ekkert smá stoltur í nýju Leiftur McQueen nærbuxunum sínum, sem er by the way í uppáhaldi. Við prófuðum þetta umtalaða límmiðakerfi og virkar það bara svo skrambi vel, að Búi vildi helst pissa á 10 mín festi til að fá límmiða. Svo þegar hann pissar segir hann alltaf „Dist ég pissa, so ég míjmida" :D Einum of krúttilegt!

Koppurinn sem var varla pissandi á fyrir límmiðum

Þá fékk hann stórt limmiðaspjald inni á baði!

Búi væri bara sáttur að eiga límmiða sem dót, þetta gerði hann sjálfur!

Annað í fréttum er að Búi greyið er með mjólkuróþol. Hann hefur verið svo stíflaður í marga mánuði og átt rosalega erfitt með að kúka, þannig við prófuðum að taka hann af mjólkurvörum og BÚMM allt annað barn. Ekkert kúkavesen og bara æði!! :D Svo prófaði ég að gefa honum eitt skyr nokkrum vikum seinna og hann rembdist í 2 daga geyið :S Þannig engar mjólkurvörur fyrir hann, allavegna ekki skyr og mjólk.

Sumarfríið okkar var yndislegt í alla staði!! Við fjölskyldan fórum hringinn í kringum landið, byrjuðum á Suðurlandi, færðum okkur svo Austur í bústaðinn okkar í Hjallaskógi, og svo Norður á ættarmót. Einnig fórum við í tjald útilegu með vinum okkar og börnum í Húsafell, sem var frábær ferð. Svo voru ófáar sumarbústaðar ferðir í bústað fjölskyldunnar í Meðalfellinu. Um daginn fórum við svo öll uppeftir og tókum upp kartöflur, það fannst Búa ekkert smá skemmtilegt. Egill smíðaði með hinum „timburmönnunum" eins og honum einum er lagið.

Hittum Atla og co í bústað eina nótt

Mæðgin við Jökulsárlón, þarsem Búi skemmti sér manna best að kasta steinum útí vatnið

Komin í Hjalló eftir langa keyrslu

Steinsofandi með fullt af sængum og koddum

Mæðgin saman að kúra

Fótabað í Bjálkalundi

Feðgar við Hveri

Bara GEÐVEIKT veður

Sundlaugin í Hrafnagili þarsem Búi fór 20 sinnum í rennibrautina

Búi gaf öndunum brauð á tjaldstæðinu

Fossatún í bongó blíðu

frændur að borða ís og prins póló



Hann er eins og lítill gamall karl með þessi hlífðargleraugu :)

Hópurinn og krakkarnir í Húsafelli

Sáttur við útiveruna

Krakkarnir í litlu stólunum sínum!

Þetta fannst Búa geðveikt gaman!

Þetta finnst mér óendanlega fyndin og krúttileg mynd!

Við fengum frábært veður

Búi fann þessa litlu sætu kartöflu

kartöflu uppskeran!

Hundur og barn að leika sér, Búi alveg brjál að Hera náði alltaf boltanum!

Hera að passa Búa sem var stein sofandi

Búi er kominn á nýja deild í leikskólanum og heitir hún þó nokkru skárra nafni en síðasta deildin hans, hann er nú á Tryggðarlundi í stað Kærleikslundar. Hann er ennþá með sömu fóstrunum og krökkunum sem okkur finnst frábært, og hlakkar honum til á hverjum degi að fara í leikskólann.

Jesús hvað Búi tekur stundum rosalega frekjuköst. Ég hélt að „terrible-two" væri að verða búið að þá tekur bara „terrible-three" við sem er helmingi verra!! Þá er bara farið í hart, því hvorugt okkar nennir að eiga frekt barn.

Hér er t.d. Búi að fara af límmingunum yfir því að þurfa að bíða í röð

Ég man ekki einusinni hvað málið var hérna

Egill er nú útskrifaður frá Keili með hæðsu meðal einkunn sem farið hefur út þessum skóla. Við auðvitað ofur stolt af drengnum, sem er nú kominn í byggingaverkfræði í HÍ!! Ég reikna með því að við Búi sjáum hann næst um jólin ;p Egill er ekki eini dúxinn því að Búi fór í 2-3 ára skoðunina sína núna í síðustu viku og dúxaði líka!! Hann var í klukkutíma "verkefna vinnu" og þrautum, til að sjá hvernig hann stæði sig miðað við jafnaldra sína. Ég er nú búin að gorta mig að þessu þannig þetta kemur kannski ekki neinum á óvart! Hehe En hlutirnir fóru þannig að Búi var með 98.5 stig af 100 sem er það hæðsta sem hefur mælst á heilsugæslunni hans!!! :D Meðaltal fyrir hans aldur (uppá mánuð) eru tæp 75 stig, þannig læknirinn rak upp stór augu þegar hún sá hversu hátt Búi skoraði. Ekki langt að sækja það drengurinn ;) hehe

Dúxinn og semi dúxinn

Búi er stundum svo fyndinn að það er engu lagi líkt!! Um daginn labbar hann að mér og segir "Mamma má ég fá bjór??? ....Neiiiii ér að djóóóka" hahah Held að systir mín hafi verið að kenna honum eitthvað þegar hún var að passa hann! Svo er hann alltaf að klípa í kinnar á okkur fjölskyldunni og segja "Chubby Bunny" með tilheyrandi geiflum hahahah!! Svo er hann stundum að toga augun upp og segja kínverji, og svo niður og segir japani!! Hann er kostulegur alveg hreint.

Þetta gerði Búi við Heru voffa, hann kallaði hana dreka hund!

Búi vildi endilega prófa svitaeyðir...



Búi og Íris að gera "Chubby-Bunny"

Ein skemmtileg saga. Alltaf þegar Búi pissar vill hann sitja, sem er gott og gilt, en hann þarf bara að halda typpinu ofan í klósettinu svo það fari ekki uppúr. Svo fór ég á klósettið einn daginn og Búi kemur hlaupandi í æðubunukasti og segir "mamma halda typpinu oní!!" ég segist nátturulega ekki vera með typpi. Þá horfir hann á mig undrunar augum og segir "MÁ ÉG SJÁ"!!!! Svo er það aðal númerið hjá honum segja segja öllum að mamma sé ekki með typpi, bara hann og pabbi :D Elska þetta!

Strákarnir að byggja hús/virki uppí rúmi!

Þetta fannst Búa toppurinn!

Ég er nýkomin frá USA og verslaði ekkert smá mikið á Búa! Hann hvefur verið í nýjum fötum uppá dag síðan ég kom heim. Svo fór ég til Stokkhólms með vinnunni og keypti það sem vantaði uppá í H&M...ekki að honum vantaði neitt. Feðgarnir voru bara saman heima á meðan og höfðu það kósý.

Nýju apa náttfötin sem gera drenginn óendanlega sætan

Stórfréttir! Ómar bróðir Egils og kona hans Sessa eignuðust lítinn dreng um daginn, innilegar hamingjuóskir með hann :* Ekkert smá sætur!! Sara loksins orðin stóra systir! Svo er það bara Ásta systir Egils eftir 4 vikur, og Eyrún og Einar vinir okkar Egils eftir 5! Það er aldeilis frjósemin í kringum okkur, maður þarf bara að fara að passa sig hvað maður drekkur ;p

Litli sæti Ómarsson :*

En nú vona ég að poppið sé búið og get því sagt skilið við ykkur í bili. Ég kem bráðlega með nýjar og skemmtilegar sögur af Búa. Þangað til, bæjó!
Linda, Egill og Búi :*

***FULLT af nýjum myndum í Júní, Júlí og Agúst albúminu..endilega skoðið. Svo mynduð þið gleðja mitt litla hjarta ef þið mynduð kvitta hér fyrir neðan eða í gestabókina! :))))

Linda Mjöll Sindradóttir
1 athugasemd

Bíó, sveitaferđ, Skoppa og Skrítla og dreka risaeđla

18. maí 2010 klukkan 22:18
Seint blogga sumir en blogga þó! Sælt veri fólkið...ég ætla ekkert að vera að afsaka hvað ég hef verið léleg að blogga undanfarið, svona er þetta bara ;) Allavegna er margt skemmtilegt búið að gerast síðan síðast. Read and enjoy!



Búi er "teddaja" gamall!

Hvar á ég að byrja...já páskarnir!!! Búi fékk fleirri páskaegg en fjöldinn í fjölskyldunni. Hann fékk rosa flott heimatilbúið frá Siggu ömmu og nokkur önnur frá ömmum og öfum og langömmum og langöfum. Páskarnir einkenndust af áti og veislum eins og aðrir hátíðardagar. Búi þurfti auðvitað að leita að páskaegginu sínu og hafði mjög gaman af. Svo fékk hann lausan tauminn í 20 mín áður en ég lét það hverfa...ofan í magann á okkur. Nokkrar myndir frá nammi átinu.



Hvað er þarna???


PÁSKAEGG!!!!



Einn sáttur við lífið

Búi fór í bíó í fyrsta skipti um daginn. Við fórum á Hvernig á að Temja Drekann sinn. Hann kallar myndina Dreka-risaeðlu myndin. Hann var nú bara nokkuð góður á myndinni, borðaði popp, smá nammi og skemmti sér konunglega. Hann vildi hinsvegar alltaf tala við mig og var ekkert á því að hvísla. Þá mútaði ég honum stundum með nammi. Hann lærði það fljótt og þandi röddina óspart þegar hann vildi nammi ;)



Einn góður á því í bíó með poppið sitt

Við Búi fórum líka á Skoppu og Skrítlu í boði Siggu ömmu! Þetta var æðislegt leikrit og Búi brosti allann hringinn á meðan á því stóð. Mér fannst þetta meira að segja skemmtilegt. Þetta er rosalega barnvænt og krakkarnir sitja alveg upp við sviðið og fá leikhús upplifunina beint í æð. Áður en leikritið byrjar koma Skoppa og Skrítla fram og opna fyrir börnunum og bjóða þeim velkomin, og svo er alltaf talað beint við börnin ekki foreldrana. Eftir leikritið fá allir krakkarnir frostpinna og fá að mynda sig með þeim. Búi var ekkert smá ánægður, sérstaklega með frostpinnan. Náði samt mynd af honum með þessum tveimur skrítnu í búningunum.



Frændurnir sætur...Búi og Atli :)



Ein svona stór og flott af Búa og Skoppu og Skrítlu!! :D

Í síðustu viku fórum við í sveitaferð með leikskólanum á Grjóteyri í Kjós. Þetta var yndisleg ferð og hafði mamman síður gaman af heldur en barnið. Búi fékk að halda á hvolpum, kettlingum og ungum. Svo fékk hann að klappa lömbum, folaldi og kálfum og meira að segja setjast á hestbak! Held samt að það sem hafi staðið mest uppúr hjá honum var að setjast á lítið fjórhjól og þykjast keyra. Þvílík gleði hjá einu barni! Svo fékk hann að setjast uppí nokkra traktora og bát! Um hádegisbilið voru svo grillaðar pulsur og leikið sér í leiktækjunum í sveitinni. Mjög góður dagur þann dag.



Hann klappaði kálfi sem var voða hrifinn af honum



Svo hélt hann á litlum hvolpi...sem okkur langaði bara að taka með heim



Búi með kettling sem hann hafði gaman af, sérstaklega þegar hann mjálmaði



Búi með lítinn páskaunga



Einn á "hebats"



Mjög vinsæll traktor



Af öllum dýrunum og dótinu þá var þetta bilaða fjórhjól vinsælast hjá drengnum!!! "ýta mér" sagði hann bara :D

Búi er svolítið líkur mömmu sinni að einu leyti (ok eða kannski mörgu), en hann gengur 100% frá öllu dótinu sínu þegar við biðjum hann um það. Hann kallar það „dadda jhá" eða ganga frá. Við erum ekki að tala um neitt lítið skipulag. Bílar fara í ákveðinn kassa, kubbar í annan, og lestardótið í þann þriðja. Ef dótið passar ekki í eitthvað af þessu fer það í fjórða kassann. Svo eru alltaf sama dót uppá hillunni og snýr í ákveðna átt, ákveðnir kallar eru í ákveðnum bílum og dýrunum er öllum raðað í réttan bás á í Fisher Price Animal farm húsinu. Sparkbíllinn er svo í horninu, hjólið á pússlmottunni , bækur í bókahillunni og kubbar teknir í sundur og í kubba stampinum HAHAH! Þetta er alveg frábært, en getur stundum verið til leiðinda...sérstaklega þegar við erum á leiðinni eitthvert út en hann vill ganga frá áður en við förum ;)



Bui með uppáhaldið sitt...saltstangir



Verið að búa sér til gulrótar og epladjús!

Búi talar rosalega mikið...alveg ROSALEGA! Það kjaftar af honum hver tuska allann daginn. Samt skiljum við Egill hann ekki alltaf. Ef svo er þá segi ég oft „já er það" og bara þykist skilja, en hann veit betur. Hann endurtekur aftur og aftur alveg þangað til að ég skil hvað hann er að segja og endurtek það tilbaka við hann!! Hann vill sko vera alveg viss um að við vitum upp á hár um hvað hann er að tala! haha



Búi fær ekki lengur dót, hann hefur mest gaman af einhverju svona ;p



Einn í skýjunum í náttfötunum frá Atla frænda! "Íáwawin gera sona" hahah

Búi er alltaf að syngja. Um daginn kom hann heim af leikskólanum og bað mig um að syngja „bitabærinn". Ég skildi hann ekkert og hann hélt áfram að syngja það fyrir mig og ég var engu nær, eina orðið sem ég náði var „rassvasann". Svo spurði ég í leikskólanum og komst að því að lagið var „Bibbi fer í bæinn" hahah! Svo er hann alltaf að syngja um brunabílinn, köttin og skógarþröstinn. Ég googlaði það lag bara og lærði fyrir hann!! Svo hringir hann regluglega í ömmur og afa og syngur fyrir þau. Það er yfirleitt fyrir svefninn og syngur hann þá Komdu Kisa Mín og Sofðu Unga Ástin mín. Það er alveg ótrúlegt hvað hann er búinn að læra mikið síðan hann byrjaði í leikskólanum. Nýjasta nýtt er þegar ég bið hann um að gera eitthvað, þá segir hann „é nenniggi" hahah!! Á þetta orð að vera komið í orðabók hjá 2 ½ árs??



...svona Búi vertu kyrr á meðan ég tek myndir af þér..



neibb.... en hann er samt sætur og myndast vel :***

Búi kann alla stafina í stafrófinu, meira að segja þessa íslensku. Núna er hann að læra hvað stafirnir segja. Við förum oft í skemmtilegan leik fyrir svefninn, þá skrifa ég upp kannski 10 stafi og geri svo hljóðið sem hver stafur segir og hann stimplar yfir réttan staf. Áðurfyrr taldi ég bara upp stafinn sjálfann en núna erum við komin yfir í hljóðin. Honum finnst þetta ekkert smá gaman og biður um að fara í stafaleik :D Kannki verður hann bara farinn að lesa 3ja ára ;p haha



Í boltaleik með Írisi uppí bústað um helgina!



Hún var ekkert smá góð að leika við Búa sinn!



Feðgarnir að lesa Latabæjarbókina uppí bústað fyrir svefninn :)

En jæja gott fólk, þetta er nóg í bili. Didda mamman, Egill pabbinn og Búi kveðja að sinni. Blogga fljótlega, því að er svo mikið skemmtilegt sem gerist á sumrin. Við erum með ættarmót, afmæli, útskriftarveislur, útlilegur og margt annað fyrir stafi í sumar. Húsdýragarðurinn verður vinsæll, ásamt sundferðum og heimsóknum til góðra vina.
Xoxo við þrjú!



Búi dreka risaeðla...sem vildi ekki taka þetta af sér í heilan dag



...hann horfði á sjónvarpið með þetta...



...borðaði kvöldmatinn....



...og háttaði sig...allt á þess að taka þetta af!! :D

ES- FUUUULLT af myndum í Mars, Apríl og Maí albúmunum!




Linda Mjöll Sindradóttir
Sögur | 4 athugasemdir

Búi hittir Íţróttaálfinn, koppa ţjálfun

30. mars 2010 klukkan 16:39
Það er greinilegt að mamman er komin í fulla vinnu því það gefst lítill tími fyrir blogg þessa dagana. Lífið gengur sinn vanagang hér í Baugakórnum. Búi nýtur sín í leikskólanum, Egill brillerar í skólanum, og mamman vinnur og hefur mjög gaman af. Hér að smá því sem við höfum verið að gera síðust vikur :)



Búi lét sér fullt úti í snjónum :)

Ég vil byrja á að óska Mörtu frænku og Magga innilega til hamingju með frumburðinn sinn. Þau eignuðust lítinn keisara strák í byrjun mánaðarins, nánar til tekið 6 Mars. Einnig óskum við Júlla og Sylvíu innilega til hamingju með frumburð sinn. Þau eignuðust litla stelpu síðastliðin Þriðjudag. Allt að gerast í beibí málum hjá vinunum!



Hér er Óðinn- litli Mörtu og Magga kútur



Litla ónefnda prinsessa Júlla og Sylvíu!

Búi bræddi mig alveg um daginn þegar ég bað hann um að segja „mamma ég elska þig"...hann sagði það á sínu sæta barnamáli og gaf mér stórt knús og koss með :))))) Jiii ég vissi ekki hvert ég ætlaði!! Hann er svo mikill rúsínu sjarmör!

Búi elskar Bósa Ljósár og Íþróttaálfinn. Við keyptum límmiða handa honum með fígúrunum og leikur hann sér með þá eins og dót. Alltaf að líma þá á eitthvað og taka aftur af. En það eyðileggur auðvitað límið og það er Búi ekki að skilja. Svo eitt kvöldið límdi hann nokkra miða á stuðkantinn á rúminu sínu ekkert smá glaður með það, þótt laust væru festir. Svo vaknar hann um miðja nótt í öngum sínum yfir því að Bósi væri týndur. Þá þurfti Egill að fara í vasaljósaleik og bjarga Bósa undan rúminu og setja á sinn stað! Haha



í góðu chilli með snakkpokann sem hann stal úr skúffunni!

Einn Laugardaginn vorum við Búi á ís rúntinum okkar og ákváðum að koma við í Byko því það var súkkulaðikaka í borði og íþróttaálfurinn átti að koma og vera með smá sprell fyrir börnin. Ég veit ekki hvert drengurinn ætlaði þegar álfurinn sjálfur (að vísu ekki Magnús Scheving) steig á sviðið að byrjaði að dansa og gera æfingar! Ég hélt að augun myndu detta út úr hausnum á honum Búa!!! Hann kallaði bara „Í-áwáwin" og leit á mig til skiptis með stjörnur í augunum. Þvílík gleði :D



Frat íþróttaálfurinn (ekki Maggi Schev)- Búa var samt sáttur



Hann fékk líka köku og svala!

VÁ kvöldin höfum við vissa rútínu og felst hún í því að Búi sofnar alltaf sjálfur eins og hann hefur gert alveg frá byrjun. Við lesum Stafakarlana og Toy Story ásamt mörgum öðrum bókum, förum í vasaljósaleik og syngjum saman. Uppáhalds lagið hans Búa er Komdu Kisa Mín. Egill syngur nú reyndar ekki það lag fyrir Búa, því hann á erfitt með að halda laglínunni í gamla Nóa...að eigin sögn! Ekki það að ég sé nein Diddú! Allaveganna þykir okkur Agli voða gott að kúra með honum áður en hann sofnar, en nú er hann byrjaður að halda manni niðri þegar við reynum að fara framúr. Hann tekur í hausinn á mér og segir „mamman a lúlla", svo segir hann „etta þig mamman" . Þá auðvitað neyðist ég til að kúra smá lengur ;)



Búi vill ekki nota kopp né setu á klósettið. Það er minnsta mál að sitja á því og þykjast rembast, en það er ekki séns að fá neitt í klósettið. Núna er það nýjasta að hann vill bara alls ekki vera bleyjulaus, maður þarf að vera viðbúin með næstu bleyju strax og hin er farin af. Það er meira að segja erfitt að fá hann í bað því hann vill ALLTAF hafa bleyju á sér. Hann grípur alveg að framan og aftan og segir PISSA PISSA!! Það er ekki séns að fá að viðra bossann!



Búi að stija á koppnum að leika sér með baðdótið

Búi er hættur með snuð!!!!! Hann hefur ekki notað snuð í tæpan mánuð eða svo. Þetta byrjaði allt þegar Búi gisti hjá foreldrum mínum og ég gleymdi snuðinu heima. Hann var meira og minna brjálaður alla nóttina og svo heyrði snuddan ekki sögunni meir. Í leikskólanum vildi hann bara halda á henni þegar hann sofnaði. Þannig það mætti segja að foreldrar mínir tóku það á sig að venja Búa af því ;) hehe Mikið rosalega sluppum við Egill vel!



Búi að leika við Níney (líney) bestu vinkonu sína!

Hér eru nokkur skemmtileg orð í orðaforðanum hans Búa. Ég skrifaði þetta aðallega svo ég muni það, en kannski hefur einvher annar gaman af þessu líka :)

Atzu-aftur
Gaggem- Tannkrem
Bababæ- Latabæ
Íáwáwin- Íþróttaálfurinn
Púts- Púst
Ots- Ost
Gok- Mjólk
Zúgguzezós- Súkkulaði Cherrios
Nammni- Nammi
Míúm- Rúm
Hebats- Hestbak
Lillablá- Fjólublár
Nanana- Banana
Zós- Ljós
Bózi Zós- Bósi Ljósár
Lidillan a mamman- Leikskóla er gaman (HAHA)
Blablablu- Kartöflu
Blablablið- Kartaflan (HAHAHAHA)
Dórt gugging- Stórt tyggjó
Babbabutsu- Sokkabuxur
Memað- Meðal
Babagang- Spiderman
Búbumann- Súperman
Mem- Krem


Þangað til næst! Það eru fullt af myndum í endanum á Februar albúminu og svo er komið nýt Mars. Check it out!
Kveðja frá okkur í Baugakórnum!




Linda Mjöll Sindradóttir
4 athugasemdir

Strepptakokkar, kisur, öskudagur og sumarbústađur

22. febrúar 2010 klukkan 22:42
Búi er svo sannarlega orðinn skemmtilegur og eigum við Egill oft erfitt með að halda andliti þegar vitleysan veltur uppúr honum. Hann er nánast standandi eins manns leikrit!! Það er margt skemmtilegt búið að gerast síðustu vikur, og hef ég því frá nógu að segja.

Í byrjun mánaðarins fékk Búi strepptakokka. Hann hafði fengið einhverja kvefpest og hita sem var treg að fara og fékk hann svo kokkana ofan á það. Þetta byrjaði allt þegar hann vildi ekki borða, og þá er greinilega eitthvað að fyrir lítinn mathák eins og Búa. Svo sagði hann bara „illt í munninn" mörgum sinnum og vakti nánast heila nótt. Svo rauk hitinn uppí tæp 40 stig og þá fór hann á sýklalyf litli kúturinn. Það er munur fyrir okkur Egil þegar Búi getur sagt okkur hvað er að, hvar honum er illt. Eftir það var hann fljótur að ná sér, fyrir utan rauð útbrot sem hann fékk um allan líkamann. Læknar kalla þetta fimmtu veikina og getur oft komið eftir mikinn hita.



Lasinn en samt svo brosmildur

Við Búi kíktum í heimsókn til Hrundar sem er að vinna með mér. Kisan hennar eignaðist kettlinga um daginn og fórum við Búi að skoða litlu sætu hnoðrana! Hann var ekkert smá glaður :D Hann lék sér við kisurnar með stjörnur í augunum, og vilda mamman nánast taka einn með sér heim fyrir barnið. Þeir voru líka svo góðir og leyfðu Búa og taka sig upp og knúsast og kyssa! Algjörar dúllur!



Ekkert smá ánægður með sig :D



í boltaleik við kisu

Nú er Öskudagurinn yfirstaðinn og áttu krakkarnir að koma í leikskólann í búningum. Ég fékk lánaðan geðveikan keisara búning fyrir Búa frá Atla frænda! Rosalega vandaður og flottur galli! Búi var nú ekki par sáttu með fatavalið á Öskudagsmorgun og neitaði að fara í fötin, en eftir smá málamiðlanir náði ég honum í gallann með því loforði að ég væri bara að fara að taka myndir af honum . Svo sveik ég það auðvitað! Þegar á leikskólann var komið sá hann að allir hinir voru ekki heldur í sínum venjulegu fötum og þá var hann ekkert smá glaður og ánægður með útlitið á sér.



Kominn í gallan fyrir myndatökuna :) Ekkert smá flottur!



Hérna fattaði hann að ég ætaði ekki að taka hann úr fötunum



Kærleikslundur á Öskudag!

Um helgina fórum við í Reykjaskóg með fjölskyldunni hans Egils. Þar skemmti Búi sér aldeilis vel með alla athyglina og skemmtunina sem því fylgdi. Hann lék sér úti í dúkkuhúsinu úti, kúrði og horfði á teiknimyndir, litaði, fór í heitan pott (heitapoti eins og hann kallar það) og margt fleirra. Þetta var algjör afslöppun sem allir höfðu gott og gaman af.



Búi kominn í afslöppun



Mæðgin í pottinum fyrir svefninn



Hannes afi að lesa uppáhalds bækurnar með Búa



Ekkert smá ánægður að máta efri kojuna



Pabbi sæti



Við Búi úti í litla húsinu hans

Nú er Búi á svo skemmtilegum aldri eins og ég hef örugglega sagt hundrað sinnum. Hann vill gera gjörsamlega ALLT sjálfur. Allt frá því að klæða sig í föt, bursta í sér tennurnar, hella í glasið sitt, skipta um bleyju ofl. Það getur reynst okkur Agli pínu erfitt, sérstaklega þegar við erum að drífa okkur út á morgnana.

Búi hefur þróað sitt eigið tungumál! Við Egill erum þau einu sem skiljum það svona nokkurnvegin. Hann svissar oft S og T í orðum. Púst er púts, ostur er ots og þannig eftir götunum, frekar fyndið! Svo ef það er R í orðunum þá sleppir hann fysta stafnum hahah! Svo þegar ég er stundum að segja honum hvernig á að segja orð eins og til dæmis svín...þá skrollar og endar svo á -ín. Þá segi ég „nei, svín með essi" þá segir hann „ín með ess". Frekar erfitt að útskýra hehe! Svo núna er það nýjasta að setja stafinn „A" í endan á hverju orði! Ég kalla þetta Hetfield syndrome....þið rokkarar vitið hvað ég meina ;) En núna segir hann já-a og nei-a í staðinn fyrir bara hreint og beint já og nei!



Búi hefur mjög gaman að sitja á koppnum sínum, en ekkert hefur komið í hann í lengri tíma.

Egill á það til að vera stundum annars hugar og Búi vill stundum rosalega mikið ná athyginni hans. Þá hefur hann tekið „Stewie" í Family Guy á þetta. Fyrst kallar hann pabbi pabbi pabbi pabbi pabbinn pabbinn pabbinn pabbinn Egill Egill Egill Egill Egill. Þetta er ótrúlega fyndið, sérstaklega því hann segir nafnið alveg fullkomið!


En nóg blogg í bili, reyni að vera duglegri :) Endilega skoðið nýjar myndir í Febrúar myndaalbúminu!
Linda, Egill og Búi



Bæjóóó


Linda Mjöll Sindradóttir
2 athugasemdir

Seint blogg um áramótin og margt fleira

24. janúar 2010 klukkan 20:39
Já ég ætti nú hreinlega að skammast mín! Ég er löngu overdue með nýtt blogg! Málið er að ég er komin með nýtt áhugamál....að lesa! Ég er búin að vera límd yfir Twilight bókunum, en á meðan ég bíð eftir næstu bókarsendingu frá Bretlandi  (frá elsku Jönu minni) hef ég tíma til að skrifa fáeinar línur.

Áramótunum eyddum við í góðu yfirlæti í Skógarhæðinni með allri fjölskyldunni og Söru frænku og co frá Svíþjóð. Þar var borðaður risa kalkúnn og sprengdar rakettur langt frameftir kvöldi. Búi var ekki neitt rosa spenntur fyrir að vera úti í öllum látunum, en lét sig hafa það í smá stund. Hann horfði furðu lostinn upp í himininn á öll ljósin og hélt fast í mömmu sína og pabba þegar hvellirnir komu. Hann fékk svo nóg eftir smá stund og vildi bara vera inni og horfa út um gluggann. Þegar honum var hætt að lítast á blikuna horfði hann á Latabæ með headphone á sér, og varð þá ekki var við sprengjur né lætin í kringum sig. Drengurinn sló met í vöku, og vakti til 2!!! Hann var rosalega góður og alveg til fyrirmyndar.



Egill verkar kalkúninn undir ströngu eftirliti móður sinnar ;)



Fjör á háhesti á Ómari



Við Búi og Sara að sprengja smá :)



Búi með glowstick á leið á rave! ;)



Áramótarskaupið sló í gegn!



En aðallega hjá Búa því hann fékk ís :D



Aaaalveg að koma áramót...



GLEÐILEGA NÝTT ÁR!!! :D:D:D



Skál!



Sæt frændsystkyni, dauð uppgefin eftir kvöldið

Fyrsta Janúar fórum við svo í boð í Fjarðó til Siggu ömmu og Sindra afa. Þar komumst við að því að Búi elskar camembert ost með sultu á kex! Svo prófaði Egill að gefa honum blá-mygluost sem angaði eins og úldinn sokkur, þá gretti Búi sig og skyrpti haha!



Hluti af genginu, það er svo erfitt að hóa í mynd



Búi og camembertinn! Skemmtileg svipbrigði hjá drengnum

Okkur Agli finnst Búi stundum alveg ótrúlega fyndinn. Hann tekur upp á svo skemmtilegaum hlutum og segir svo fyndið. Hér eru svona smá dæmi sem ég man núna. Hann er alltaf að reyna að fá okkur í kapp hérna heima á sparkbílnum og litla þríhjólinu sínu. Hann segir „mamma lól" og „búi brrr"! Svo eigum við að þeytast í kappi þvert yfir stofuna og aftur tilbaka. Svo um daginn hellti hann niður og ég sagði „ ohhh Búi minn"...þá svarar hann mér á móti „Ohhh mamma min" . Svo kallar hann Egil ekki pabba heldur „pabbinn". Það er frekar krúttilegt að heyra hann kalla „koddu pabbinn" hahaha.



Við Búi í kappi



Það er líka rosa gaman í skrifborðsstóla kappi með pabba ;) lol



Hér er Búi með Emil Darra sem farþega á hjólinu sínu

Hér eru nokkur skemmtileg orð sem Búi hefur búið til um hina ýmslu hluti: gagem- tannkrem, bababæ- latabæ, döddavaff- tvöfalt vaff, blablablu-kartöflu, í áwáwinn- íþróttaálfurinn haha. Svo segir hann Egill alveg perfect!! Það detta inn ný orð á hverjum degi, og hann apar eftir öllu sem við segjum. Nú þarf sko aldeilis að bíta í tunguna þegar meður meiðir sig, svo maður kennir ekki barninu ljótu orðin ;)

Hann er sífelt að testa okkur Egil í uppeldismálum. Ég kannski bið hann um að koma og bursta tennurnar og hann horfir á mig glottandi og segir nei! Þá segist ég verða reið ef hann kemur ekki og það virkar ekki heldur...hann hleypur bara hlæjandi í burtu og gefur algjörlega skít í allar hótanir. Eins og um daginn þá vorum við í blómaval og Búi vildi helst knúsa kaktusana. Ég sagði nokkrum sinnu Ó Ó og tók hendurnar frá, en hann vildi endilega fikta í þeim. Svo auðvitað stakk hann sig og varð voða hlíðinn eftir það. „ Ái mamma ái" sagði hann, og fattaði að það væri kannski ráðlagt að hlusta á mömmu sína. Hann gerir þetta örugglega bara einu sinni!



Sætustu strákarnir mínir!

Á bóndadaginn var kaffi í leikskólanum hans Búa. Þá var pöbbum, öfum og frændum boðið í smá snarl og leikið við börnin. Egill, Sindri afi og Hannes afi létu sig ekki vanta og mættu á staðinn, og var Búi mjög stoltur að hafa sitt fólk hjá sér. Egill gleymdi því miður myndavélinni, þannig ekkert náðist á filmu. En ég fékk smjörþefinn af þessari skemmtun því drengirnir komu heim ilmandi af hákarli og allskyns súrmetum.... mér til mikillar gleði! Mér skilst að Búi hafi látið sig hafa það, og smakkað allt og er hann því hugaðri en móðir sín ;)

Þessi mynd er fyrir Söru frænku, hún gaf Búa þessa rosa flottu Barbapabba rúmföt í jólagjöf! Þau eru í miklu uppáhaldi hjá honum :)

Hann sofnar meira að segja strax

Verið svo væn lömbin mín að skrifa í gestabók eða hér fyrir neðan. Það gleður svo mitt litla hjarta :)
Kveðja,
Linda, Egill og Búi


Linda Mjöll Sindradóttir
5 athugasemdir

Ofur jólablogg!! :D

27. desember 2009 klukkan 22:05
Jæja nú kemur rausan! Enn og aftur vill ég óska ykkur gleðilegrar hátíðar :) Þetta hefur svo sannarlega verið ljúfur mánuður. Jólin hafa snúist um að borða, sofa, slappa af, baka smákökur, borða meira og hitta fjölskyldu og vini eins og hjá flestum öðrum. Ætla ég nú að segja ykkur frá hvað Búi hefur verið að bardúsa í jólamánuðinum.



Búi og mamma að setja saman jólatré fyrir herbergin hans :D

Einn Sunnudaginn fórum við Búi (á meðan Egill var í próflestri) bæði í afmæli og jólaball hjá Granz fjölskyldunni. Afmælið var hjá Atla frænda og var Búi svo óður í kökur og góðgæti að hann hafði varla tíma til að mingla við hina gestina. Svo var heljarins mál bara að koma honum í útifötin og í næstu veislu, því hann hélt að hann væri að missa af svo miklu. En þegar á jólaball fjölskyldunnar var komið var heldur betur komið fjör í kallinn og sykurinn úr súkkulaðikökunni farinn að kikka inn. Búi var í essinu sínu að dansa í kringum jólatréð með Huldu ömmu, leika við hina krakkana í fatahenginu, og háma í sig hlaðborðs kræsingar. SVO KOM JÓLAVEININN!!! Búi vissi að hann fengi nammi hjá honum og lét hann ekki hverfa úr augsýn. Hann sat og beið og beið og hlustði á hann tala, og sagði öðru hvoru „nammni" upphátt bara til að vera viss um að sveinki gleymdi því nú ekki! Svo loksins fékk Búi þennan flotta nammipoka í hendurnar og skaut rótum beint fyrir neðan stólinn hans sveinka og hreyfði sig ekki fyrr en pokinn var búinn (ég lét auðvitað rúmlega hleminginn hverfa, svo barnið myndi ekki fá í magann). Þetta fannst öllum veislugestum mjög fyndið að sjá Búi búinn að planta sér við hlið sveinka og ekki kippa sér upp við þegar Jóli tók hann upp. Hann var bara við kammó og bað jólasveininn um að opna sleikjóinn sinn :D



Krakkarnir allir fínir á ballinu



Amma Hulda og Búi að dansa í kringum jólatréð :)



"NAMMNI MAMM" ekkert smá glaður



Svo hlammaði hann sér bara niður



"opna"



Svo settist hann bara í fangið á jólasveininum :)

Helgina eftir fórum við á jólaball hjá VÍS með Siggu ömmu, Írisi, Atla og Helenu. Þar var líka dansað og sungið og auðvitað fenginn nammipoki :S Úff þetta er farið að hljóma svolítið illa! Ég tók samt megnið úr honum :) Búi vildi helst vera í sviðsljósinu og labbaði inn á gólf í miðju „leikriti" hjá jólasveinunum og fór að skoða skrautið á jólatrénu og sýna þeim það. Íris hjóp á eftir honum, en þá lagðist hann í gólfið og fór að öskra! Haha Frekar neyðarlegt...ég leit bara í kringum mig og spurði „hver ætti eiginlega þetta barn"?? :P



Gaman á jólaballi :D



Íris með litlu frændurna



Búi að trufla jólaleikritið...er að reyna að gefa jólasveininum skraut sem hann stal af trénu hehe

Einnig fórum við í jólatrés leiðangur í Buga sem er sveitin hennar Elínar tannlæknis og co. Hún gaf öllum starfsmönnum Krýnu jólatré í jólagjöf, og gerðu sér allir glaðan dag og fóru í sveitna að velja sér tré. Þetta var frábær dagsferð þarsem þrammað var um skóginn, drukkið heitt súkkulaði og borðað smákökur. Við Búi erum staðráðin á því að hafa fengið flottasta lerkið á svæðinu, og prýðir þetta dýrindis jólatré stofuna okkar í dag! Svo komst Búi í einhverja vatns sprænu sem lak af húsinu og skemmti sér konunglega með plastáhöld við að grípa vatnið og hella á milli. Hann hefði geta verið úti allann daginn!



Flotta jólatréð okkar :D



Fólkið að skoða trén



Búi ekki lítið sáttur að sulla í rigningunni



Hella svo á milli

Aðfangadagskvöld var mjög ljúft og rólegt hjá okkur. Við vorum bara 3 eins og síðastliðin 3 ár og höfðum það rosalega kózý. Við elduðum hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi og borðaði Búi eins og herforingi . Hann var svo ansi duglegur að opna pakkana eftir matinn, og pakka sem aðrir áttu að fá líka! Hjálpsemina vantaði ekki hjá drengnum! Búi fékk bækur, kranabíl, gröfu, traktor (hann er mikið í bílunum) náttföt, náttslopp og aur. Þökkum við kærlega fyrir drenginn sem og okkur, þetta var frábært alveg.



Fyrst var farið á leiðið hennar Dísu ömmu á aðfangadag



Sætastur í skyrtu og með slaufu



Ææææ ég vill ekki hafa þetta!! En við Egill höfðum betri höndina ;)



Einn ekkert smá sáttur við að fá gler glas á fæti :D



Svo var borðaður dýrindis jólamatur



og opnaðir pakkar



Við fengum rosa flottan frá Búa...upphleypt handafar úr gipsi til að henga á vegg. Hann var ekki lítið sáttur með þessa gjöf til okkar eins og þið sjáið :D



Búi fékk rosa flottar gjafir þ.á.m. Barabapabba rúmföt frá Söru frænku!! :D



Svo var borðaður eftirréttur og flossað uppi...



...og niðri ;)

Jóldagskvöld fórum við Geira og Örnu (bróðir mömmu) ásamt ÖLLUM úr þeim legg fjölskyldunnar. Það var sko fjör á þeim bæ! Það er lítið leikherbergi undir súðinni hjá þeim með fullt af dóti, teppum og tónlist. Atli, Helena og Búi skemmtu sér konunglega að hlusta á Latabæjar tónlist og leika sér þar, og voru Íris og Elma Lísa frænkur voða duglegar að passa krakkana. Svo voru grillaðar lambalundir og allt með því og var auðvitað borðað yfir sig. Búi var orðinn pínu pirraður og var Latabæ skellt í labtoppinn og svo fékk hann heyrnatól. Þetta fannst honum alveg frábært og sat í mestu makindum að borða eftirrétt og horfa á goðið sitt á skjánum. Eftir þetta var Búi svaka hress, og hljóp um og lék sér og skríkti af gleði. Þvílíkur galsi sem koma allt í einu í hann! En uppúr miðnætti ákváðum við að heim skildi fara, og vakti Búi alla ferðina heim í vagninum sínum og horfði á stjörnurnar og taldi jólaljós eða „lólalós".



Krakkarnir í leikherberginu :D



Búi að horfa á teiknimynd og borða ís í eftirrétt



Rosa gaman hjá Búa og Geira :D

Annan í jólum fórum við í Skógarhæðina til tengdó (Huldu ömmu og Hannesar afa) í dýrindis mat enn og aftur. Þar var Sara frænka sem er í miklu uppáhaldi hjá Búa. Hún er loksins komin í heimsókn til Íslands frá Svíalandinu góða. Þar léku frændsystkynin sér allt kvöldið og skemmtu sér.



Búi og Sara í afslöppun eftir matinn



Ómar frændi og Búi :)

Búi er svo fyndinn! Ég veit ekki hvort ég næ að lýsa þessu nógu vel eða hvort ég þurfi bara að ná þessu á video. En þegar hann verður spenntur þá talar hann alveg á háa C-inu. Hann verður svo skrækur og syngur næstum þegar hann er að talar. Ég spurði hann hvort hann vildi ís og hann ljómaði allur í framan, augun opnuðust og hann kallaði í skrækri röddu „Búi ÍÍÍÍÍÍÍíííííí´sss"...hahahaha! (og meira að segja smá smámæltur) Þetta er svo sætt, að ég lofa að setja inn myndband ef ég næ því einhvertíman á filmu!



Hér komst Búi í kremdollu :)



Baðtímar enn í uppáhaldi



Lesinn Barbapabbi



...og aftur lesinn Barbapabbi :)



Búi að bretta uppá augnhárinn á pabba síðum. Með þetta allt á hreinu :)

Nýjasta uppáhaldið hans Búa er kakó, eða eins og hann myndi segja það „kakÓÓÓÓÓÓ" með sinni úber skæru röddu og gleðina skínandi í gegn. Hann hefur fengið svoleiðis 3 sinnum yfir jólin og alveg umlað af ánægju og beðið um meiri rjóma! Okkur finnst hinsvega Búi vera kominn með pínu bumbu, þannig við svissum yfir í léttmjólkina hér með, og skrúfum fyrir allt óþarfa kexát og sætindi. Ekki það að við gefum honum svoleiðis neitt að ráði. Hann er bara voða flottur strákur, og samvarar sér mjög vel í hæðar og þyngdarkúrvunni, orðinn 15 kg og 92cm!

En þessu er víst lokið í bili, rúmlega 1000 orða blogg færsla er nú skrambi gott! Læt heyra í okkur mjög fljótlega. Gleðilegt nýtt ár kæru vinir, fjölskylda, og aðrir lesendur! Gangið hægt inn gleðinnar dyr og megi nýja árið vera ykkur gott :*



Bless bless :)

Kær kveðja úr Baugakórnum,
Linda, Egill og little man Búi
Linda Mjöll Sindradóttir
2 athugasemdir